
Fréttir

Spjallfundur um dánaraðstoð: Hvernig gætu góð lög um hana litið út?
Hvað ef ekki lengur hvort heldur hvernig?
Spjallfundur í beinni útsendingu á Zoom auk mætingu á staðinn
Miðv. 19. nóv. kl. 17:00 - 18:30. Akademíusalnum, 3. hæð, Hafnarstræti 5,
Mikilvægur hluti siðferðilegs réttmætis þess að lögleiða valkvæma dánaraðstoð er að lagaramminn sé skynsamlegur og í honum sé gætt að fjölmörgum mikilvægum atriðum varðandi mat og framkvæmd. Fyrir rúmu ári síðan lagði þingflokkur fram frumvarp til laga um dánaraðstoð. Í ljósi efnis þessa frumvarps og þeirra hugmynda sem eru uppi um hvar eigi að setja mörkin varðandi veitingu dánaraðstoðar, ætlum við að ræða málið.

NÝTT! Umræðurhringur - Hvað liggur þér á hjarta?
Heimspekileg nálgun umræðna um það sem manni liggur á hjarta
Miðvikudaginn 12. nóv. kl. 17:00 – 18:30 í Bókastofu RA, Hafnarstræði 5, Rvk.
Umsjón: Unnur Hjaltadóttir, BA heimspeki.
Hvað böggar mann? Greinum við skýrt frá því? Hvaða málefni í samfélaginu finnst manni að það þurfi að ræða nánar? Hvað halda aðrir um það sem ég er að hugsa? Hvað einkennir málefnalegar umræður af þessu tagi? Hvernig tekur maður mótrökum?
Hvernig væri að ræða það í vinalegu umhverfi og heimspekilegri nálgun? Tækifæri til þess fæst með því að prufa Umræðuhring Farsældar – Hvað liggur þér á hjarta?
Óskað er eftir skráningu (ekki nauðsyn) en þátttaka er ókeypis.
ATH! Skráðir þátttakendur sem komast ekki á staðinn geta fengið sendan zoom-hlekk fyrir fjarþátttöku.

Námskeið: Húmanísk heimspeki, siðfræði og saga
Helgina 24. - 26. október
Kennt: fös 24/10 15:00 – 17:30, lau 25/10: 9:30 – 12:00 og sun 26/10: 9:30 – 12:00.
Hvaða svör getur húmanisminn veitt?
Saga húmanismans er saga mannkynsins út úr valdkúgun, hindurvitnum og fáfræði. Það er þó bara hálf leiðin því með húmanismanum lærist nýtt gildismat og grunnur að félagslegri framþróun. Hvers vegna er húmanisminn samt svo sjaldan nefndur á nafn? Hvaða erindi á hann inn í framtíðina?

Áfengisdrykkja og íþróttaviðburðir - á það samleið?
Málfundur fim. 23. okt. kl 17:00 í Akademíusalnum
Á að draga hreinar línur eða hlýða kalli frelsisins? Finna milliveg?
Á sama tíma og sala áfengra drykkja tekur á sig æ fleiri myndir og fer fram á fjölbreyttari stöðum heyrist hærra í baráttufólki fyrir skýrt afmörkuðum línum í sölu og framboði áfengis, sérstaklega ...

Viðtal við formann Farsældar
Viðtal við Svan Sigurbjörnsson á Samstöðinni
Í yfirgripsmiklu viðtali við formann Farsældar, er farið yfir aðdraganda þess að hann hóf afskipti af lífsskoðunarmálum og hvernig sú vegferð fléttast við sögu húmanískrar félagsstarfsemi hérlendis þar til að nú hefur hann og kjarni uppbyggjenda í þeirri sögu stofnað Farsæld.

Kynningarfundur Farsældar í Akademíusalnum
Kynningarfundur þriðjud. 14. okt. kl. 17:00 – 18:15.
Farsæld efnir til opins kynningarfundar um félagið í Akademíusalnum, Hafnarstræti 5, 3. hæð, Reykjavík.
Hugmyndafræði félagsins verður kynnt stuttlega, fólkið í stjórn félagsins og dagskrárliðir vetrarins, en þar á meðal er ritgerðarsamkeppni fyrir ungt fólk.

Farsæld opnar starf sitt og hefur almenna kynningu
Farsæld varð ekki til úr tómarými hérlendis og sá hópur sem stofnaði félagið í mars síðastliðinn á meðal annars rætur úr uppbyggingu veraldllegrar/húmanískrar athafnaþjónustu og jafnræði trú- og lífsskoðunarfélaga. Með stofnun Farsældar vilja stofnendur bjóða upp á virkt mennta- og umræðustarf um siðferðileg málefni. Með birtingu vetrardagskrár félagsins eru mörkuð tímamót í þá veru. Nánar má lesa um þetta í grein formanns félagsins, sem hér fer eftir.

Farsæld fær hæfandi vinnuaðstöðu og aðsetur!
Stórhuga stjórn rennir frekari stoðum undir félagið
Þann 1. október síðastliðinn tók Farsæld myndarlegt skrefi til uppbyggingar á starfi félagsins með undirritun leigusamnings við ReykjavíkurAkademíuna, en með því fær félagið skrifstofu og ýmsa aðstöðu til félagsstarfsins.

Farsæld tekur þátt í friðargöngunni Þjóð gegn þjóðarmorði
Á Austurvelli 6. sept. kl 14:00 - 16:00
Morðum og hungursneið - þjóðarmorði á Gaza þarf að linna strax! Farsæld hefur ákveðið að taka þátt í þessu samstillta átaki um frið.

Farsæld velur sér bráðabirgðalógó
Niðurstaða vals stjórnar úr 7 tillögum
Fyrsta lógó Farsældar komið í notkun!

Farsæld kallar eftir bráðabirgðalógói
Skemmtilegt tækifæri til hönnunar
Hefurðu gaman af hönnun? Hér er skemmtilegt verkefni sem getur aukið hróður þinn sem hönnuð. Skila má tillögu að lógói fram til og með 14. júlí.

Farsæld stofnað 23. mars 2025 í Safnahúsi
Húmanískt lífsskoðunarfélag
Nýr valkostur fyrir húmanískt þenkjandi fólk