
Viltu gerast félagi í Farsæld?
Upplýsingar um hugmyndagrunn og starfsemi félagsins má finna hér á vefsíðum félagsins.
Það þarf ekki annað en að fylla út formið hér fyrir neðan og senda, til að skrá sig í félagið, en jafnframt þarf að greiða félagsgjald til að gerast meðlimur. Félagsgjaldið er árgjald sem er innheimt árlega.
Fyrir árið 2026 er félagsgjaldið kr. 6.000 en hægt er að óska eftir að greiða kr. 2.000 ef efni eru lítil með því að velja það í flettilista skráningarformsins hér að neðan. Þar má einnig velja að greiða sérstök styrktargjöld, á bilinu 10 – 25 þúsund krónur eða velja „Annað – sjá í skilaboðaboxi" ef tilvonandi félagi óskar eftir því að greiða aðra upphæð, sem viðkomandi tiltekur í skilaboðaboxinu.
Greiðsla félagsgjaldsins fer fram með millifærslu inn á reikning félagsins: 0133-26-019330, kt. 580625-0960. Vinsamlegast veljið að senda tilkynningu til farsaeld@farsaeld.is í lok færslunnar.
Ætlir þú að gerast félagi þá hvetjum við þig til að halda hakinu við „Ég vil vera á póstlista Farsældar" því með því er hægt að upplýsa þig um mikilvægar fréttir og dagskrá viðburða félagsins með beinum hætti.
(PS: munið að haka við "I'm not a robot" svo formið virki).
Viðbótarskráning gegnum Þjóðskrá. Þann 18. maí 2026 var umsókn félagins til sýslumanns um lögskráningu þess samþykkt. Farsæld er því lögskráð lífsskoðunarfélag. Með því eru athafnarstjórar félagsins löggiltir hjónavígslumenn og félagið viðurkennt sem fullgilt lífsskoðunarfélag samkvæmt skilyrðum laganna. Það hefur samfélagslegt gildi. Félagið er jafnframt orðið aðili að sóknargjaldakerfinu en samkvæmt stefnu þess er það ekki sá hluti skráningarinnar sem félagið sækist eftir, og leggur því áherslu á beina skráningu og styrkveitingu við félagið með greiðslu félagsgjalds og annarrar aðstoðar eða þátttöku, sbr. að ofan. Skráning í félagið í Þjóðskrá er eftir sem áður mikilvæg stuðingsyfirlýsing. Hægt er að skrá sig í félagið hjá Þjóðskrá hér.
Sendu okkur línu
Hefurðu spurningar um félagið? Viltu mögulega taka þátt í starfi félagsins? Hefurðu góðar hugmyndir sem gætu gagnast starfsemi félagsins? Sendu okkur línu og við verðum í bandi.
Netfang:
Samfélagsmiðlar