top of page
< Fréttayfirlit

Farsæld heiðraði 3 húmanista á fyrst aðalfundi sínum

Stjórn Farsældar

16. mar. 2026

Góðum áföngum náð á fyrsta starfsári Farsældar

Fyrsti aðalfundur Farsældar var haldinn með hæfilegri blöndu af alvarleika og léttleika. Sævar Finnbogason varaformaður setti tóninn í upphafi og söng og spilaði á gítar fallegt lag eftir þekkt poppband. Kristian Guttesen var sérlegur gestur fundarins og flutti frumsamið ljóð eftir sig. Hófst þá formlega dagskrá.


Fastir liðir aðalfundar

Svanur Sigurbjörnsson formaður las upp ávarp sitt og skýrslu stjórnar. Hann tjáði ánægju yfir fyrsta árinu og það væru sérstök tímamót og fagnaðarefni fyrir félagið að hafa nú þetta mikilvæga uppbyggingarár að baki. Sé stiklað á helstu uppbygingarþrepunum eru þau eftirfarandi:

  • Stofnhópur, hugmyndagrunnur, siðareglur og félagslög sett á stofn á stofnfundinum 23.3.2025

  • Apríl: skráning félagsins sem almannaheillafélag og fengin kennitala og bankareikningur

  • Maí: lén keypt og vefsíðan sett upp

  • Júlí: Athafnaþjónustan formlega sett af stað. Félagið valdi sér bráðabirgðalógó eftir samkeppni

  • September: Þátttaka í friðargöngu undir merkjum félagsins og friðardúfu UN.

  • Október: Félagið formlega kynnt út á við með opnun Fb-síðu og viðtali á Samstöðinni þ. 8. okt.

  • Félagið leigir aðstöðu í ReykjavíkurAkademínunni, Hafnarstræði, Reykjavík. Heldur kynningarfund.

  • Málstofa um áfengissölu og íþróttaviðburði.

  • Nóvember: Félagið sækir um skráningu sem lífsskoðunarfélag hjá ríkinu.

  • Umræðuhringur um hjartans mál og hugvekjur í formi Farsældarkorna settar í gang.

  • Desember: Fyrst athöfnin - útför - sem athafnarstjóri Farsældar þjónar.

  • Hugvekja um táknræna merkingu vetrarsólstaða.

  • Febúar: Málstofa um Aðferð samræðunnar í námi og kennslu.

  • Mars: Fyrsta giftingin undir merkjum Farsældar - 14. mars. Athafnarstjóri: Jóhann Björnsson

Gjaldkeri félagsins, Júlía Linda Ómarsdóttir kynnti ársreikninga. Afkoma ársins 2025 var neikvæð um 67 þ. kr. enda ýmiss stofnkostnaður sem féll til. Skoðaðir ársreikningar voru samþykktir.


Í fjárhags- og framkvæmdaáætlun stjórnar kom meðal annars fram að málstofur eða málþing verði samhliða á netinu til að auka mökuleika fólks til þátttöku eða til að fylgjast með. Stefnt er að byggja upp námskeið fyrir ungmenni og halda námskeið í athafnarstjórnun. Stærsti viðburðurinn framundan er málþing um farsæld sem markmið í námi og veiting verðlauna í ritgerðarsamkeppni félagsins 29. maí. Skoðunarmenn reikninga voru kosnir: Ingrid Kuhlman og Jón Magnús Guðjónsson.


Engar lagabreytingar né kjör í stjórn voru á dagskrá að þessu sinni.


Heiðursviðurkenningar Farsældar fyrir mikilvæg störf í þágu húmanisma á Íslandi

Í ávarpi Svans formanns í tilefni þessa liðar sagði hann:

„Hugsjónastörf eru jafnan ekki unnin til þess að fá hrós og viðurkenningar, heldur til þess að byggja upp mikilvæga hluti og njóta góðs félagsskapar í leiðinni. .. Þó þetta góða fólk sækist ekki eftir titlum og heiðrum þá er hverju félagi mikilvægt að iðka þakklæti og sýna þeim sem bera byrðarnar og ryðja brautina virðingu. ...Við í Farsæld höldum því okkar fyrstu formlegu heiðursviðurkenningu og þakklæti í garð einstaklinga sem hafa unnið mikilvæg störf í þágu hugsjónarinnar – húmanismans.

Stjórn Farsældar hefur ákveðið að heiðra 3 húmanista sem hafa fyrir löngu síðan unnið fyrir heiðursviðurkenningu þannig að það er ekki eftir neinu að bíða.“

Steinar Harðarson

Steinar Harðarson
Steinar Harðarson

Steinar Harðarson hefur verið ein af grunnstoðum húmanismans á Íslandi síðustu 20 ár. Hann hefur verið kletturinn í öllum þáttum húmanískrar starfsemi – borgaralegar fermingar, stjórnarstörf og athafnarstjórnun – frá því að hann kíkti inn um dyrnar. Óbilandi kjarkur hans, tryggð, 100% mæting, innlegg, hvatning, skilningur, skynsemi og húmanískt hugarfar hafa gert hann að hornsteinum húmanískrar starfsemi. Hann var í fyrsta 6 manna hóp athafnarstjóra Siðmenntar. Hann stóð alltaf vaktina og þess eru vart dæmi að hann hafi neitað því að taka að sér athöfn og það var afar mikils virði þegar við vorum fá og hófum þjónustuna 2008. Steinar heftur sinn sérstaka virðulega og fallega stíl þegar kemur að því að stýra borgaralegum fermingum. Athafnirnar sem hann stýrði eru sérstaklega minnistæðar og gefa hlýju í hjartað. Ekki skemmdi að  hann bar íslenska þjóðbúninginn afar vel og bætti við virðulegan blæ á athöfnina. Steinar er alltaf hvetjandi og er minnistætt er þegar hann taldi í stjórn Siðmenntar kjarkinn til að halda athafnir fyrir alþingismenn fyrir þingsetningar, enda varð hann síðan fyrsti flytjandi hugvekju fyrir þá við slíka athöfn.


Bjarni Jónsson

Bjarni Jónsson
Bjarni Jónsson

Bjarni Jónsson er húmanisti í húð og hár. Hann hefur óbilandi drift og framkvæmdarkraft. Bjarni er laginn í samskiptum og hefur mikinn skilning á gildi tengslamyndunar og samræðu við ólíka aðila þegar kemur að því að kynna hugsjónir og baráttumál húmanismans. Það býr einhver kjarnorka í Bjarna og þegar hann setur stefnuna á verðug markmið, leitar hann allra góðra leiða til að fá þeim framgengt. Hann er prýddur hugrekki, þolinmæði, framsýni og seiglu sem á sér fáa jafningja í félagsstarfi. Gildi húmanismans liggja djúpt í Bjarna og hann er tilbúinn að fórna eigin tíma fyrir framgang heildar og uppbyggingu nýs merkingarfulls veruleika. Húmanisminn á Íslandi á honum fyrst og fremst – að öðrum ólöstuðum – að þakka þeim lagalegu framförum sem náðust hérlendis sem kom síðan fram í sprengingu á fjölda giftingarathafna, borgaralegra ferminga og aukningu fjölda félagsmanna í Siðmennt. Það traust sem fólk fékk á starfsemi húmanista á Íslandi er af stórum hluta byggt upp fyrir tilstuðlan ótrúlegs baráttuþreks og frumkvæðis í verki sem Bjarni hefur sýnt.


Karólína Geirsdóttir

Karólína Geirsdóttir
Karólína Geirsdóttir

Hver félag þarf kletta sem standa alltaf vaktina. Það á við um hana Karólínu Geirsdóttur. Hún kemur frá

Hollandi sem er að mörgu leyti land vöggu húmanismans enda var Humanist International stofnað þar árið 1952 og stefnuyfirlýsing þess kennd við Amsterdam. Við vorum heppin að Karólína féll fyrir íslenskum hestum og giftist svo íslenskum manni og festi rætur hér. Í Mosfellsbæ bjó hún í vinalegu húsi sem hún opnaði fyrir fundi og mannfögnuði trúleysingja og húmanista. Á þessum árum var það ekki sjálfsagt að opna sig um trúleysi og margir komu út úr „þjóðkirkjuskápnum“ á fundi hjá Karólínu. Hún var óbilandi þátttakandi og hvatningsmaður bæði hjá bæði SAMT og stjórn Siðmenntar um margra ára skeið, m.a. sem gjaldkeri. Hún sýndi stuðning, góðvilja, seiglu og hafði margt úr sinni reynslu og þekkingu á mannlífinu að miðla til félags sem var að feta sín fyrstu spor og brjótast út úr umhverfi einskonar móralsks trúræðis og fáfræði um aðra valkosti hérlendis. Hjá henni leið öllum vel og hún hélt uppi húmornum. Án Karólínu hefði allt sem áorkaðist illa gengið.


Störfum þeira verða gerð nánari skil á sérstakri síðu sem verður birt á vef félagsins innan skamms.


Stjórn Farsældar færir þeim Steinari, Bjarna og Karólínu hjartans þakkir fyrir áratugalangt starf þeirra í þágu húmanismans og þeirrar uppbyggingar fyrir samfélagið sem því hefur fylgt.


Hér fylgja nokkrar myndir frá aðalfundinum.

Svanur setur aðalfundinn. T.h. er Sævar Finnbogason, Karólína Geirsdóttir og Steinar Harðarson
Svanur setur aðalfundinn. T.h. er Sævar Finnbogason, Karólína Geirsdóttir og Steinar Harðarson
Kristian Guttesen flytur annað af tveimur ljóðum sínum sem hann leyfði okkur að njóta
Kristian Guttesen flytur annað af tveimur ljóðum sínum sem hann leyfði okkur að njóta

Sævar slær á létta strengi.  Frá vinstri: Júlía Linda Ómarsdóttir og Ingrid Kuhlman
Sævar slær á létta strengi. Frá vinstri: Júlía Linda Ómarsdóttir og Ingrid Kuhlman

Sævar Finnbogason spilaði og söng undurfallega
Sævar Finnbogason spilaði og söng undurfallega
Júlía Linda gjaldkeri hefur fengið ársreikning félagsins samþykktan
Júlía Linda gjaldkeri hefur fengið ársreikning félagsins samþykktan

Steinar Harðarson tekur á móti heiðursviðurkenningunni
Steinar Harðarson tekur á móti heiðursviðurkenningunni
Svanur Sigurbjörnsson og Steinar Harðarson
Svanur Sigurbjörnsson og Steinar Harðarson
Svanur sýnir viðurkenningarskjalið og les texta þess
Svanur sýnir viðurkenningarskjalið og les texta þess
Bjarni Jónsson tekur á móti sinni heiðursviðurkenningu
Bjarni Jónsson tekur á móti sinni heiðursviðurkenningu
Bjarni á orðið
Bjarni á orðið
Karólína Geirsdóttir fær heiðursviðurkenninguna
Karólína Geirsdóttir fær heiðursviðurkenninguna

Að lokum var fagnað og afmælissöngurinn sunginn - Farsæld orðið 1 árs. Júlía Linda færði okkur tertu, Unnur smákökur og Svanur óáfengt freyðivín. Skál!

Júlía Linda með afmælistertuna flottu
Júlía Linda með afmælistertuna flottu
Samverunnar notið.  Frá vi: Unnur Hjaltadóttir, Jón Magnús Guðjónsson, Karólína Geirsdóttir, Jóhann Björnsson, Sævar Finnbogason og Steinar Harðarson
Samverunnar notið. Frá vi: Unnur Hjaltadóttir, Jón Magnús Guðjónsson, Karólína Geirsdóttir, Jóhann Björnsson, Sævar Finnbogason og Steinar Harðarson


  • Facebook
  • Instagram

Farsæld - húmanískt lífskoðunarfélag

Fast aðsetur: höfuðborgarsvæðið

kt. 580625-0960

bottom of page