
Farsæld orðin aðili að Humanists International

Stjórn Farsældar
7. maí 2026
Alþjóðlegt samstarf orðið hluti af starfseminni
Þann 4. maí síðastliðinn bárust félaginu þau ánægjulegu tíðindi að alþjóðasamtök húmanista - Humanists International (HI) samþykktu inngöngu Farsældar í samtökin og buðu okkur velkomin í fjölskyldu yfir 120 félaga húmanista í yfir 60 löndum víða um heim.
Inntökuferlið tók um 2 mánuði. Eftir að stjórn HI samþykkti umsóknina fengu öll aðildarfélögin að skoða umsóknina og félagið. Að því loknu var Farsæld samþykkt. Á sama tíma voru tvö önnur félög samþykkt til inngöngu en það eru Costa Rican Association of Secular Humanism, sem er fyrsta félagið þaðan, og British Columbia Humanist Association, Kanada. Sjá frétt HI.
Humanists International var stofnað árið 1952 í Amsterdam og stefnuyfirlýsing þess heitir því Amsterdam-yfirlýsingin. Hún er hluti af hugmyndagrunni Farsældar - sjá hér. HI hefur verið leiðandi afl í húmanisma og stutt vel við aðildarfélög sín. Þriðja hvert ár halda samtökin heimsþing og verður það nú í ár í Ottawa, Kanada, dagana 7.–9. ágúst. Það er ávalt gefandi að sækja þing HI því þar koma saman bæði mikilvæg málefni og frábærir fyrirlesarar.
Félögum í Farsæld geft tækifæri til að gerast aðilar að Fb-síðu samtakanna og svo er hægt að kynna sér samtökin nánar á vefsíðu þeirra - humanists.international