
Samræða sem aðferð í námi og kennslu

Stjórn Farsældar
12. feb. 2026
Málstofa 24. febrúar kl. 17 í Fundaherbergi RA
Viðburðurinn er svokölluð málstofa sem fer fram í þægilegu umhverfi til samræðna. Jóhann Björnson hefur umsjón. Í málstofunni verður samræða sem aðferð í námi og kennsluskoðuð með hliðsjón af öllum skólastigum. Málstofan fer fram samtímis í Fundaherbergi RA og á netinu.
Hlekkur: https://calendar.app.google/vJZrd9Jm6xsvCGof7
Rætt verður um markmið, aðferðir, tækifæri, ávinning og áskoranir með tilliti til mismunandi nemendahópa og námsgreina. Sérstaklega verður fjallað um reynsluna af beitingu samræðu í kennslu á unglingastigi í grunnskóla og á framhaldsskólastigi við Háskólann í Reykjavík.
Málstofan er kjörin fyrir fólk sem hefur áhuga á stunda samræður, hvort sem er í skólastarfi, með börnum sínum, vinnufélögum eða vinum. Þátttaka er opin öllum.
Jóhann Björnsson er aðjúnkt við Listkennsludeild Listaháskóla Íslands og kennari við Háskólagrunn Háskólans í Reykjavík. Efni málstofunnar er hluti af viðfangsefni doktorsverkefnis hans. Jóhann á sæti sem varamaður í stjórn Farsældar og er athafnarstjóri á vegum félagsins.