

Farsæld er
skráð lífsskoðunarfélag
18. maí 2026
Þýðing opinberrar skráningar Farsældar
Farsæld sótti um opinbera skráningu hjá ríkinu sem húmanískt lífsskoðunarfélag í október 2025. Nefnd sýslumanns Vesturlands sem sér um mál trú- og lífsskoðunarfélaga taldi félagið uppfylla öll skilyrði skráningar utan þess að vera of ungt til að hafa sýnt fram á stöðugleika í starfinu. Umsókninni var því synjað en á vormánuðum sótti Farsæld aftur um og hafði þá uppfyllt fleiri atriði sem styrktu rökin fyrir stöðugleika, meðal annars vegna þess að í byrjun maí 2026 var félagið tekið inn í alþjóðasamtök húmanista, Humanists International. Það inntökuferli tók 2 mánuði og félagið hefði ekki fengið inngöngu nema fyrir að vera trúverðugt og starfa eftir lífsskoðunum húmanismans. Nefnd sýslumanns fundaði um umsóknina á ný þann 15. maí og var hún þá samþykkt. Ákvörðunin er svo lögfest í Lögbirtingarblaðinu 20. maí og upp úr því verður hægt að taka við skráningum fólks inn í félagið gegnum Þjóðskrá. Jafnframt verður hægt að taka við skráningu félaga gegnum vefsíðu félagsins.
Hvaða þýðingu hefur hin lögformlega skráning félagsins? Helstu kostir hennar eru eftirfarandi:
-
Félagið fær lagalega viðurkenningu og stöðu fyrir að uppfylla lagalegur kröfur um starfemi lífsskoðunarfélags. Þetta gefur félaginu ákveðinn gæðastaðal og trúverðugleika. Sýslumannsembættið fylgist með því árlega að félagið halda skuldbindingar sínar um að starfa innan ramma laganna, en það þarf að skila ársreikningi og skýrslu um starfsemi félagsins árlega. Félagið þarf að bjóða upp á athafnir og fjalla um siðferðileg málefni. Það má ekki starfa í hagnaðarskyni og má ekki aðhafast neitt sem er á móti góðri allsherjarreglu. Í félagslögum Farsældar eru ákvæði sem endurspegla skilyrðin sem rituð eru í lögum um trú- og lífsskoðunarfélög.
-
Athafnarstjórar félagsins fá vísgluleyfi til giftingarathafna. Vígsluleyfið er lagalega séð í höndum forstöðumanns félagsins sem svo útnefnir hæfa athafnarstjóra til að fá skráningu sem „staðgengla“ sína. Þetta er nokkuð sérstakt skipulag en undirstrikar að athafnarstjórar trú- og lífsskoðunarfélaga starfa alltaf á vegum félaganna og eru ekki sjálfstæðir verktakar fagi sínu. Félagið og forstöðumaðurinn hverju sinni bera ábyrgð á störfum þeirra. Athafnarstjórar þurfa ekki lengur að framkvæma könnun á skilyrðum hjúskapar fyrir vígslu því það er í höndum sýslumannsembættanna. Eftir vígsluna skila vígslumenn inn undirrituð vígsluvottorði til Þjóðskrár um að vígslan hafi farið fram.
-
Félagið verður hluti af sóknargjaldakerfi ríkisins. Þetta er sá hluti skráningarinnar sem Farsæld sækist ekki eftir, því stefna þess í jafnræðismálum trú- og lífsskoðana gengur út á að ríkið haldi ekki félugunum uppi, heldur sjái fyrir innviðum sem tryggi að allt fólk geti kvatt sína látnu sómasamlega og hafi til þess fallega og rúmgóða aðstöðu sem allir geti notað. Félagar í trú- og lífsskoðunarfélögum eiga að öðru leyti að sjá um sín félög sjálf og nota ekki almannafé í sértækar þarfir sínar og uppbyggingu. Sóknargjöld eru ekki „félagsgjöld" heldur eyrnamerkt framlag ríkisins til allra félaga í trú- og lífsskoðunarfélögum sem eru 16 ára eða eldri. Gildir einu hvort þessir einstaklingar eru greiðendur tekjuskatts eða ekki. Ríkið greiðir því með þeim einstaklingum sem gera það ekki. Þetta framlag er ekki hátt árlega eða 1.166,- kr á hvern félaga. Félagsgjald Farsældar er 6.000,- kr. (eða 2.000,- skv. vali) og því kemur „sóknargjaldið" aðeins að gagni í tilvikum „óvirkra" félaga sem myndu ekki greiða félagsgjald til að vera í lífsskoðunarfélagi.
Skráningunni ber að fagna og með henni hefur félagið lokið uppbyggingu helstu stoða sinna sem virks starfandi lífsskoðunarfélags. Uppbyggingunni er þó hvergi lokið og nú tekur við áframhaldandi þróun gagnlegarar starfsemi félagsins.