
Málþing: Farsæld sem markmið menntunar

Stjórn Farsældar
14. maí 2026
Farsæld sem markmið í gegnum mannkostamenntun
Málþing Farsældar
Farsæld sem markmið menntunar
Föstudaginn 29. maí kl. 14:30⎼16:30
Sögu, húsi Menntavísindasviðs HÍ, stofu 262.
Mannkostamenntun er vaxandi menntastefna sem meðal annars OECD hefur tekið upp. Sú menntastefna setur ekki aðeins markið á að öðlast þekkingu heldur einnig að þroska ábyrga manngerð nemenda. Á þessu málþingi Farsældar eru saman komin sterkur hópur fagfólks sem ætlar að segja frá kjarna stefnunnar og notkunarmöguleikum. Sjá hér dagskrána.
Dagskrá
14:30 Opnunarorð: Svanur Sigurbjörnsson, formaður Farsældar
14:40 Kolbrún Þ. Pálsdóttir: Farsæld sem markmið í menntun
14:55 Ingimar Ólafsson Waage: Dygðir og mannkostir gegnum listir
15:10 Kristian Guttesen: Mannkostir gegnum ljóð og bókmenntir
15:25 Svanur Sigurbjörnsson: Mannkostamenntun fyrir heilbrigðisvísindi
15:40 Kristján Kristjánsson Mannkostamenntun og menntastefna OECD ríkjanna
16:05 Vilhjálmur Árnason: Litið yfir sviðið og orð framsögumanna. Aðfararorð pallborðs.
16:10 Pallborð - spurningar og umræður
Í pallborði verður einnig fulltrúi kennara við HMOS sem nota mannkostamenntun í starfi
Áætluð þinglok um 16:30.