top of page

News

Heilabrotið - ritgerðarsamkeppni Farsældar

Fyrir háskólanema og ungt fólk 19 - 29 ára

Tilgangur samkeppninnar er að örva ungt fólk til vandaðrar siðferðilegrar hugsunar og skrifa um álitamál í samtíðinni og veita þeim jafnframt tækifæri til viðurkenningar og birtingar á ritverki sínu. Vilhjálmur Árnason, próf. emeritus er verndari keppninnar. Síðasti skiladagur er sun. 10. maí og verðlaunaafhending er fös. 29. maí kl. 15:50 í Sögu. 

Nánar ...

Gervigreindarfössari Sævars - netviðburður

Áhrif gervigreindar á samfélagið og menninguna

Föstudaginn 20. mars kl. 20:00 mun Sævar Finnbogason heimspekingur halda utan um hressilega umræðu um eðli gervigreindar og áhrif hennar á samfélagið. 

Þetta er ný netfundasería hjá félaginu. 

Teams-hlekkur

Nánar ...

Flourishing honoured three humanists at its first general meeting.

Good progress made in Flourishing's first year of operation

Yesterday, 15 March 2026, Flourishing held its first general meeting since its founding meeting on 23 March 2025.

The principal milestones in the building of the association were reviewed, and this development has progressed rapidly, as both the leadership and the group of officiants consist of an outstanding team with extensive knowledge and experience.

The admission process to Humanists International is proceeding well, and the association’s application for official registration with the state is currently under committee consideration.

There was a poetry reading and singing, but the central focus of the general meeting was the presentation of honorary recognitions and the expression of gratitude to three humanists for their significant contributions to the cause of humanism in Iceland.

Nánar ...

Samræða sem aðferð í námi og kennslu

Málstofa 24. febrúar kl. 17 í Fundaherbergi RA

Jóhann Björnson hefur umsjón. Í málstofunni verður samræða sem aðferð í námi og kennslu skoðuð með hliðsjón af öllum skólastigum. Málstofan fer fram samtímis í Fundaherbergi RA og á netinu.

Málstofan er kjörin fyrir fólk sem hefur áhuga á stunda samræður, hvort sem er í skólastarfi, með börnum sínum, vinnufélögum eða vinum. Þátttaka er opin öllum.

Hlekkur: https://calendar.app.google/vJZrd9Jm6xsvCGof7 

Nánar ...

Vetrarsólstöður - húmanísk hátíð

Húmanískar hugsanir um merkingu vetrarsólstaða

Víða um heim er merking lögð í hin árlegu tímamót sólstöðu - á norðurhveli jarðar sem vetrarsólstöður þann 21. desember ár hvert. Hér hugar Svanur, formaður Farsældar, að því hvaða merkingu þær geta haft í huga húmanista.

Nánar ...

The first ceremony under the direction of Farsæld

A milestone for Flourishing – the first ceremony

On 17 December, the first ceremony conducted by a celebrant from Flourishing took place. It was a humanist funeral.

The celebrants of Flourishing are all experienced and undertake naming ceremonies, weddings, and funerals conducted in accordance with a humanist worldview. Further information can be found on the association’s webpages concerning its ceremonies and its fundamental principles.

Nánar ...

Sigurður Ólafsson - nýr athafnarstjóri Farsældar á Suðausturlandi og Akureyri

Liðsauki í athafnaþjónustu félagsins

Sigurður Ólafsson, reyndur athafnarstjóri á Suðausturlandi og Akureyri hefur komið til liðs við athafnaþjónustu Farsældar. Félagið býður hann velkominn til starfa. 

Nánar ...

Spjallfundur um dánaraðstoð: Hvernig gætu góð lög um hana litið út?

Hvað ef ekki lengur hvort heldur hvernig?

Spjallfundur í beinni útsendingu á Zoom auk mætingu á staðinn

Miðv. 19. nóv. kl. 17:00 - 18:30. Akademíusalnum, 3. hæð, Hafnarstræti 5, 


Mikilvægur hluti siðferðilegs réttmætis þess að lögleiða valkvæma dánaraðstoð er að lagaramminn sé skynsamlegur og í honum sé gætt að fjölmörgum mikilvægum atriðum varðandi mat og framkvæmd. Fyrir rúmu ári síðan lagði þingflokkur fram frumvarp til laga um dánaraðstoð. Í ljósi efnis þessa frumvarps og þeirra hugmynda sem eru uppi um hvar eigi að setja mörkin varðandi veitingu dánaraðstoðar, ætlum við að ræða málið. 

Nánar ...

NÝTT! Umræðurhringur - Hvað liggur þér á hjarta?

Heimspekileg nálgun umræðna um það sem manni liggur á hjarta

Miðvikudaginn 12. nóv. kl. 17:00 – 18:30 í Bókastofu RA, Hafnarstræði 5, Rvk.

Umsjón:  Unnur Hjaltadóttir, BA heimspeki.

  

Hvað böggar mann? Greinum við skýrt frá því? Hvaða málefni í samfélaginu finnst manni að það þurfi að ræða nánar? Hvað halda aðrir um það sem ég er að hugsa? Hvað einkennir málefnalegar umræður af þessu tagi? Hvernig tekur maður mótrökum? 

Hvernig væri að ræða það í vinalegu umhverfi og heimspekilegri nálgun? Tækifæri til þess fæst með því að prufa Umræðuhring Farsældar Hvað liggur þér á hjarta?

Óskað er eftir skráningu (ekki nauðsyn) en þátttaka er ókeypis.

ATH! Skráðir þátttakendur sem komast ekki á staðinn geta fengið sendan zoom-hlekk fyrir fjarþátttöku. 

Nánar ...

Námskeið: Húmanísk heimspeki, siðfræði og saga

Helgina 24. - 26. október

Kennt: fös 24/10 15:00 – 17:30, lau 25/10: 9:30 – 12:00 og sun 26/10: 9:30 – 12:00.

Hvaða svör getur húmanisminn veitt? 

Saga húmanismans er saga mannkynsins út úr valdkúgun, hindurvitnum og fáfræði. Það er þó bara hálf leiðin því með húmanismanum lærist nýtt gildismat og grunnur að félagslegri framþróun. Hvers vegna er húmanisminn samt svo sjaldan nefndur á nafn? Hvaða erindi á hann inn í framtíðina?   

Nánar ...

Áfengisdrykkja og íþróttaviðburðir - á það samleið?

Málfundur fim. 23. okt. kl 17:00 í Akademíusalnum

Á að draga hreinar línur eða hlýða kalli frelsisins? Finna milliveg?

Á sama tíma og sala áfengra drykkja tekur á sig æ fleiri myndir og fer fram á fjölbreyttari stöðum heyrist hærra í baráttufólki fyrir skýrt afmörkuðum línum í sölu og framboði áfengis, sérstaklega ...

Nánar ...

Viðtal við formann Farsældar

Viðtal við Svan Sigurbjörnsson á Samstöðinni

Í yfirgripsmiklu viðtali við formann Farsældar, er farið yfir aðdraganda þess að hann hóf afskipti af lífsskoðunarmálum og hvernig sú vegferð fléttast við sögu húmanískrar félagsstarfsemi hérlendis þar til að nú hefur hann og kjarni uppbyggjenda í þeirri sögu stofnað Farsæld. 

Nánar ...

Kynningarfundur Farsældar í Akademíusalnum

Kynningarfundur þriðjud. 14. okt. kl. 17:00 – 18:15.

Farsæld efnir til opins kynningarfundar um félagið í Akademíusalnum, Hafnarstræti 5, 3. hæð, Reykjavík. 

Hugmyndafræði félagsins verður kynnt stuttlega, fólkið í stjórn félagsins og dagskrárliðir vetrarins, en þar á meðal er ritgerðarsamkeppni fyrir ungt fólk.

Nánar ...

Farsæld opnar starf sitt og hefur almenna kynningu

Farsæld varð ekki til úr tómarými hérlendis og sá hópur sem stofnaði félagið í mars síðastliðinn á meðal annars rætur úr uppbyggingu veraldllegrar/húmanískrar athafnaþjónustu og jafnræði trú- og lífsskoðunarfélaga. Með stofnun Farsældar vilja stofnendur bjóða upp á virkt mennta- og umræðustarf um siðferðileg málefni. Með birtingu vetrardagskrár félagsins eru mörkuð tímamót í þá veru.  Nánar má lesa um þetta í grein formanns félagsins, sem hér fer eftir.

Nánar ...

Farsæld fær hæfandi vinnuaðstöðu og aðsetur!

Stórhuga stjórn rennir frekari stoðum undir félagið

Þann 1. október síðastliðinn tók Farsæld myndarlegt skrefi til uppbyggingar á starfi félagsins með undirritun leigusamnings við ReykjavíkurAkademíuna, en með því fær félagið skrifstofu og ýmsa aðstöðu til félagsstarfsins. 

Nánar ...

Farsæld tekur þátt í friðargöngunni Þjóð gegn þjóðarmorði

Á Austurvelli 6. sept. kl 14:00 - 16:00

Morðum og hungursneið - þjóðarmorði á Gaza þarf að linna strax! Farsæld hefur ákveðið að taka þátt í þessu samstillta átaki um frið. 

Nánar ...

Farsæld velur sér bráðabirgðalógó

Niðurstaða vals stjórnar úr 7 tillögum

Fyrsta lógó Farsældar komið í notkun!

Nánar ...

Farsæld kallar eftir bráðabirgðalógói

Skemmtilegt tækifæri til hönnunar

Hefurðu gaman af hönnun? Hér er skemmtilegt verkefni sem getur aukið hróður þinn sem hönnuð. Skila má tillögu að lógói fram til og með 14. júlí.

Nánar ...

Flourishing was founded on March 23rd, 2025 at Safnahúsi, Reykjavík

Humanistic life-stance organisation

A new option for people with a humanist outlook

Nánar ...
  • Facebook
  • Instagram

Flourishing — Humanist Life-Stance Association

Capital area, Iceland

ID No. 580625-0960

bottom of page