top of page
< Fréttayfirlit

Farsæld fagnar Bjarna Jónssyni og Steinari Harðarsyni í hóp athafnarstjóra félagsins

Stjórn Farsældar

Oct 8, 2026

Reynslumiklir athafnarstjórar styrkja hóp Farsældar

Athafnarstjórarnir Bjarni Jónsson og Steinar Harðarson komu til liðs við athafnaþjónustu Farsældar nú snemma hausts og fagnar félagið þeim góða liðsauka sem felst í þeirra komu. Þeir eru með reynslumestu athafnarstjórum landsins og hafa stýrt húmanískum athöfnum frá því að fyrsta húmaníska athafnaþjónustan var stofnuð 29. maí 2008 hjá Siðmennt. Bjarni var með fyrstu nafngjöfina og Steinar var meðal þeirra fyrstu sem stýrðu trúlausum athöfnum og var jafnframt stjórnandi fermingarathafna í fjölda ára.


Þeir hafa báðir átt miklum vinsældum að fagna í athafnastjórnun sinni og fjölskyldur hafa sótt endurtekið í að fá þá við athafnir sínar. Farsæld heiðraði þá og veitti þeim sérstakar þakkir fyrir mikilvæg störf í þágu húmanismans á aðalfundi félagsins í mars 2026. Hér má lesa nánar um það framlag þeirra. Steinar og Bjarni taka að sér allar gerðir athafna og starfa einkum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess þó að staðsetningar annars staðar séu ekki útilokaðar. Líkt og aðrir athafnarstjórar Farsældar hafa þeir opinbert vígsluleyfi fyrir giftingar. Með þeim tveimur ásamt Jóhanni Björnssyni og Svani Sigurbjörnssyni starfa nú fjórir af fyrstu sex húmanísku athafnarstjórum landsins hjá Farsæld. Það er félaginu mikið ánægjuefni.


Athafnir Farsældar má panta hér og þar má velja athafnarstjórana eftir flettilista. Upplýsingar um athafnarstjóra félagsins eru á síðu athafnarstjóra og upplýsingar um athafnirnar eru hér.

  • Facebook
  • Instagram

Flourishing — Humanist Life-Stance Association

Capital area, Iceland

ID No. 580625-0960

bottom of page